Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir kveðst ekki hafa verið sendur í leyfi frá störfum á Landspítala heldur sé hann í sjúkraleyfi. Svo segir hann í tilkynningu sem hann sendi til fjölmiðla í kvöld.
Tómas fór nýverið í leyfi frá Landspítalanum vegna tengsla hans við plastbarkamálið, ígræðslu plastbarka í Andemariam Beyene fyrir rúmum áratug, eftir að skurðlæknirinn Paolo Macchiarini fékk fangelsisdóm vegna málsins.
Tómas segir að umræðan hafi oft á köflum verið óvægin og að stundum hafi verið farið frjálslega með staðreyndir.
„Ég hef ekki verið sendur í leyfi frá störfum á Landspítala, heldur hef ég fylgt eindregnum ráðum lækna og farið í sjúkraleyfi. Það geri ég bæði heilsu minnar vegna og með hagsmuni sjúklinga minna í huga. Í starfi hjarta- og lungnaskurðlæknis geta mistök í aðgerð auðveldlega ógnað lífi þeirra, en í þeim stormi sem hefur geisað undanfarið hef ég ekki haft þá einbeitingu sem starfið krefst. Stjórnendur á Landspítala hafa stutt þessa ákvörðun mína,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Segir Tómas að á síðustu 10 árum hafi hann verið kallaður til sem vitni hjá 10 innlendum og erlendum rannsóknaraðilum plastbarkamálsins.
Þar á meðal rannsóknarnefndum Karólínsku stofnunarinnar, Karólínska sjúkrahússins, sænsku lögreglunnar og óháðri rannsóknarnefnd Landspítala og Háskóla Íslands sem Páll Hreinsson stýrði.
„Nafn mitt kemur oft fyrir í öllum þessum skýrslum, enda ákvað ég að eigin frumkvæði að afhenda öll gögn sem ég hafði undir höndum til sænsku lögreglunnar, þegar hún hóf formlega rannsókn á störfum Paolo Macchiarini fyrir tæpum áratug síðan. Gögnin innihalda m.a. nákvæma tímalínu og persónulega tölvupósta, og hafa verið lykilheimildir við að upplýsa málið. Að afhenda slík gögn var ekki sjálfgefið, enda afhjúpuðu þau í sumum tilvikum ófullkomin vinnubrögð af minni hálfu,“ segir í tilkynningunni.
Hann kveðst hafa verið opinn fyrir samskiptum við fjölmiðla og litið á það sem hluta af starfi sínu sem prófessor í skurðlæknisfræði.
„Þetta hefur greinilega orkað tvímælis hjá sumum kollegum mínum og ég mun taka þá gagnrýni til greina. Ég er mannlegur, oft á tíðum fyrirferðamikill og hvatvís, en eflaust líka hégómlegur, ekki síst þegar ég hef komið fram í fjölmiðlum til að ræða málefni sem standa hjarta mínu nærri. Ég hef þó ávallt, og eftir bestu vitund, reynt að greina rétt frá staðreyndum,“ segir Tómas.
Að lokum í tilkynningunni biðst hann afsökunar á þeim atriðum sem betur hefðu mátt fara og snéru að hans störfum.
„Ég biðst afsökunar á þeim atriðum í þessu máli sem hefðu betur mátt fara og sneru að mínum störfum sem læknir og fræðimaður, og hversu langan tíma það tók mig að sjá í gegnum Paolo Macchiarini og þann blekkingarvef sem hann skóp, og er vel lýst í þáttunum Bad Surgeon á Netflix. Þetta mál hefur nú fylgt mér í rúmlega 12 ár og, sársauka sem mun fylgja mér ævina á enda. Meiri er þó vitaskuld sársauki og missir ekkjunnar og barnanna tveggja, sem mér verður ítrekað hugsað til.“