Agnar Már Másson
Fundur breiðfylkingar stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins (SA) gekk afar vel í dag að mati ríkissáttasemjara, sem segir daginn í dag þann besta í langan tíma. Áfram er unnið að því að reyna að landa langtímakjarasamningi.
Fundinum lauk klukkan 17 en þar sátu fulltrúar SA og breiðfylkingarinnar, þ.e. Samiðnar, SGS og Eflingar.
Efling er aftur komin að borðinu eftir að hafa stigið tímabundið til hliðar í vikunni. VR og LÍV slitu sig frá breiðfylkingunni á föstudaginn í síðustu viku.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir viðræður hafa gengið mjög vel.
„Þetta var góður fundur og við náðum góðum framgangi í málinu í dag,“ segir Ástráður í samtali við mbl.is. Hann vildi þó ekki greina nánar frá framgangi fundarins.
„En [þetta var] fínn framgangur og besti dagurinn í marga daga.“
Hefur Ástráður nú boðað annan fund klukkan 10 í fyrramálið.