Sá sem varð fyrir líkamsárás af hendi dyravarðar fyrir utan skemmtistað á Hverfisgötu í nótt er ekki alvarlega særður eftir árásina.
Þetta segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is .
Hann segir að dyravörðurinn hafi verið tekinn höndum en látinn fara eftir að skýrsla var tekin. Rannsókn málsins haldi þó áfram.
Hinn særði var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans eftir árásina í nótt.