Engin merki eru um að dregið hafi úr virkni eldgossins við Sundhnúkagíga á síðustu dögum. Þá eru heldur engin merki um að virknin hafi aukist.
Landrisið heldur einnig áfram. Aftur á móti mælist lítil sem engin gasmengun á svæðinu.
„Þetta er bara sambærilegt því sem hefur verið síðustu daga,“ segir Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
„Eins og staðan er núna mælist ekkert á gasmælunum hjá okkur,“ segir Bjarki enn fremur. „En það getur auðvitað breyst og það getur auðvitað verið gas annars staðar en þar sem er gasmælir.“
Spurður út í hraunflæðið segir Bjarki engar marktækar breytingar hafa orðið á því. Rennslið hafi verið tiltölulega stöðugt alla 28 daga gossins, en þó langmest í upphafi.
„[Hraunflæðið] er ekkert að færast rosalega langt,“ segir hann. „Þetta hleðst bara upp í hraunpolla.“
Þá eru engar vísbendingar sem benda til þess að vænta megi breytinga í virkni gossins á næstunni, en þó getur allt gert, að sögn sérfræðingsins.
Annars hefur skjálftavirkni verið lítil, en samt nokkur, eftir að það tók að gjósa. „Þegar þú ert með gos í gangi er lítil skjálftavirkni,“ útskýrir Bjarki.
Auk þess varð jarðskjálftahrina í Kleifarvatni í gær, en það er „hefðbundin skjálftavirkni“, að sögn Bjarka. Jarðskjálfti varð í Kleifarvatni stuttu eftir samtal Bjarka og mbl.is og fannst hann vel á höfuðborgarsvæðinu.