Agnar Már Másson
Skjálftinn sem fannst víða á suðvesturhorninu í dag hleypti af stað skjálftahrinu undir Kleifarvatni. Hrinan virðist aftur á móti vera að fjara út.
Þetta segir Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Jarðskjálftinn mældist klukkan 10.02 í morgun og var hann 3,3 að stærð. Upptök hans urðu undir Kleifarvatni á 6 km dýpi.
Skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu, að minnsta kosti í Árbæ, Breiðholti og í miðborginni. Honum fylgdu síðan nokkrir eftirskjálftar.
Bjarki segir að um það bil 50 skjálftar hafi mælst við Kleifarvatn eftir að stóri skjálftinn reið yfir. Langfelstir þeirra voru undir 1 að stærð.
Það virðist aftur á móti farið að draga úr skjálftavirkninni á svæðinu.