Hermann Nökkvi Gunnarsson
Álitsgjafinn Lilja Rafney Magnúsdóttir sagði á borgarafundi Morgunblaðsins í gær að hún hafði dreymt sjö seli. Það þýði að Katrín Jakobsdóttir verði forseti Íslands.
Álitsgjafarnir Lilja Rafney Magnúsdóttir og Guðmundur M. Kristjánsson voru fengin á borgarafundinn með Jóni Gnarr á Ísafirði til að ræða forsetakosningarnar og spá í spilin.
Lilja nefndi undir lokin, spurð um það hvernig forsetakosningarnar myndu fara, að henni hefði dreymt sjö seli.
„Auðvitað þýðir það að Katrín Jakobsdóttir verður forseti Íslands,“ sagði Lilja aðspurð og bætti við:
„Það er næsta víst, eins og maðurinn sagði.“
Á fundinum ræddu álitsgjafarnir nýjustu könnun Prósents. Guðmundur sagði áhugavert að fylgjast með könnunum og hversu miklum breytingum fylgistölur hefðu tekið. Spurður hvort einhver annar ætti möguleika á sigri í forsetakosningunum en þeir fjórir sem mælast með mesta fylgið sagði Guðmundur:
„Ég myndi halda að það væru hverfandi líkur á því.“
Í nýjustu könnun Prósents mælist Halla Hrund Logadóttir með mest fylgi og Baldur Þórhallsson með næst mest fylgi. Katrín mældist þar á eftir og Jón Gnarr var með fjórða mesta fylgið.
Hægt er að horfa á borgarafundinn í heild sinni hér: