Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumat vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Hætta vegna hraunflæðis hefur verið talin aukin en hætta vegna gjósku talin hafa dvínað.
Í Grindavík hefur hættustig verið hækkað vegna hraunflæðis og vísbendinga um að brátt dragi til tíðinda á svæðinu.
Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að á vísindafundi í morgun hafi hættumatið verið yfirfarið. Breytingar snúi að því að hætta vegna gjósku hafi verið lækkuð úr töluverðri hættu í litla hættu á svæði eitt og sex.
„Þessi breyting er gerð vegna þess að það hefur ekki verið mikil gjóska að sleppa út í andrúmsloftið.“
Þá kemur fram að hættan í Grindavík, svæði fjögur, hafi verið aukin úr töluverðri hættu í mikla vegna hraunflæðis, þar sem hrauntungan hefur verið að stækka, þó hægt sé, innan svæðisins síðustu daga.
Þá eru einnig taldar auknar líkur á að það dragi fljótlega til tíðinda á svæðinu í kringum Sundhnúkagíga og er metið líklegra en áður að hraun geti runnið hratt til suðurs.
Því hefur heildarhætta í Grindavík verið hækkuð í mikla hættu úr töluverðri hættu.