Úrskurðarnefnd kosningamála hefur fellt úr gildi úrskurð Landskjörstjórnar um að framboð Viktors Traustasonar til forseta hafi verið ógilt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viktori en opnað hefur verið aftur fyrir meðmælasöfnun hans á island.is. Hann vantar meðmæli í öllum fjórðungum landsins.
Viktor hefur frest til klukkan 15 á morgun, 2. maí, til að safna undirskriftunum.
„Landskjörstjórn braut á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar þegar þeir mismunuðu frambjóðendum við frestveitingar til leiðréttinga og/eða úrbóta á meðmælalistum,“ segir í tilkynningu Viktors.
Hann greindi frá því í fyrradag að hann hefði einungis fengið 69 undirskriftir gildar þrátt fyrir að hafa safnað á annað þúsund undirskriftum þar sem hann hafi sett lista sína upp með því formi að fólk þurfti að skrifa niður nafn, kennitölu og dagsetningu en ekki nafn, kennitölu og lögheimili.