Rúmur klukkutími er síðan flugvél sem innihélt útskrifaranema úr Verslunarskóla Íslands fór frá Keflavíkurflugvelli til Króatíu. Upphaflega áttu þeir að leggja af stað í útskriftarferð í morgun.
Matarbifreið Newrest rakst á hurð farþegaþotu Neos og þurfti því að finna nýja vél. Hún fannst í Danmörku og flugtak var um þrjúleytið í dag.
„Almennt sýndi fólk þessu mikinn skilning og við vorum með starfmann á staðnum og þau fengu matarmiða til að geta keypt sér eitthvað að borða,“ segir Sara Jóhannesdóttir, sölustjóri ferðaskrifstofunnar Indígó.
Hún segir nemendur hafa verið rólega á flugvellinum og allt farið vel fram.
Sara segir að ástandið hafi ekki verið fordæmalaust og fyrirtækið hafi einu sinni áður lent í því að þurfa að útvega flugvél með stuttum fyrirvara.
Vélin sem fengin var í verkið kom frá flugfélaginu DAT í Danmörk og var henni flogið til Íslands frá Kaupmannahöfn.
„Við erum með okkar tengiliði og við vorum líka með aðra valkosti á hliðarlínunni ef til þess kæmi,“ segir Sara.
Í heild voru 185 sem þurfti að flytja til Króatíu. Stærstur hluti var Verslunarskólanemar en einnig nokkrir eldri ferðamenn á leiðinni í siglingu í Króatíu.
Vélin reyndist eilítið minni en sú sem upphaflega átti að flytja nemendur. Fyrir vikið þurftu fjórir Verslingar að ferðast í tengiflugi í gegnum Kaupmannahöfn í fylgd fararstjóra.