Ráðstefnan Taktu málin í þínar hendur! á vegum Alzheimersamtakanna verður haldin í dag í tilefni af alþjóðlegum Alzheimerdegi, sem haldinn er ár hvert 21. september.
Heilabilun hefur verið lýst sem forgangsverkefni í lýðheilsu af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, að því er segir í tilkynningu Alzheimersamtakanna.
Í forgangi eru rannsóknir á forvörnum gegn heilabilun.
„Lífsstíll þinn í dag hefur áhrif á heilsu þína síðar á ævinni. Þú getur dregið úr líkunum að fá heilabilun síðar á ævinni eða seinkað framgangi heilabilunarsjúkdóms. Það er ekki eftir neinu að bíða,“ segir í tilkynningu.
Ráðstefnan fer fram á Hótel Reykjavík Grand í salnum Háteig á milli klukkan 12.30 og 15.30, en einnig er sýnt frá ráðstefnunni í beinu streymi. Allir eru velkomnir, en fundastjóri er Sigríður Pétursdóttir.
Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar: