Danmörk togar mest í Íslendinga

Frá Kaupmannahöfn.
Frá Kaupmannahöfn. mbl.is/Sigurður Bogi

Flestir landsmenn nefna Danmörku þegar þeir eru spurður til hvaða lands þeir myndu vilja flytja til.

Þetta er niðurstaða í Þjóðarpúlsi Gallup en rúmlega einn af hverjum fimm nefndu Danmörku. Í öðru sæti er Spánn en þangað væri rúmlega einn af hverjum tíu helst til í að flytja. Þar á eftir kemur Noregur og því næst Ítalía, Bandaríkin og Svíþjóð.

Fólk yfir sextugu og fólk á milli þrítugs og fertugs er spenntast fyrir því að flytja til Danmerkur en fólk yfir fimmtugu og fólk á milli þrítugs og fertugs er einna spenntast fyrir að flytja til Spánar.

Fólk undir þrítugu er spenntara fyrir flutningi til Noregs og Svíþjóðar en þau sem eldri eru. Fólk milli fimmtugs og sextugs er einna spenntast fyrir að flytja til Ítalíu en fólk undir fimmtugu er spenntara fyrir að flytja til Bandaríkjanna en eldra fólk.

Íbúar landsbyggðarinnar eru spenntari en höfuðborgarbúar fyrir að flytja til Noregs en því er öfugt farið þegar kemur að því að flytja til Danmerkur, Svíþjóðar eða Bandaríkjanna.

Fólk með meiri menntun en minni er líklegra til að vilja flytja til Danmerkur eða Svíþjóðar en því er öfugt farið þegar kemur að Bandaríkjunum.

„Þau sem kysu Framsóknarflokkinn, Samfylkinguna, Viðreisn, Vinstri græn, Miðflokkinn eða Pírata ef kosið yrði til Alþingis í dag myndu helst flytja til Danmerkur, þau sem kysu Flokk fólksins eða Sjálfstæðisflokkinn myndu helst flytja til Spánar en þau sem kysu Sósíalistaflokkinn flyttu helst til Noregs,“ segir í tilkynningu frá Gallup.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert