Ný stjórn Pírata í Kópavogi var kjörin á laugardag. Þar var Árni Pétur Árnason sagnfræðingur endurkjörinn formaður stjórnarinnar. Heitar umræður um breytingar á merki félagsins áttu sér stað á fundinum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pírötum í Kópavogi.
Einnig hlutu Indriði Ingi Stefánsson varaþingmaður, Matthías Hjartarson hátækniverkfræðingur og Elín Kona Eddudóttir skáld endurkjör á aðalfundi félagsins.
Salóme Mist Kristjánsdóttir, öryrki og stjórnarmaður í NPA-miðstöðinni, stígur ný inn í stjórnina í stað Evu Sjafnar Helgadóttur varaþingmanns sem kjörin var í framkvæmdastjórn Pírata fyrr í mánuðinum.
Haft er eftir Árna Pétri að hann sé spenntur fyrir árinu. Síðasta stjórn hafi undirbúið veturinn vel og séu verkefnin ærin. Segir hann meirihlutann í Kópavogi engan veginn hafa mætt þörfum ungs fólks, öryrkja og annarra sem standa höllum fæti í bænum.
„Hér er nánast ekkert húsnæði byggt, loftslagsáætlun meirihlutans er bitlaus romsa sem ætti frekar heima í tragikómedíu, og þau eru bókstaflega hætt að leggja hjólastíga. Við Píratar höfum unnið gott starf til að veita þeim aðhald í þessum málum en þurfum að sýna íbúum að við erum raunhæfur valkostur til þess að bæta úr stöðunni á næsta kjörtímabili,“ er haft eftir hinum nýkjörna formanni.
Í tilkynningunni kemur fram að fráfarandi stjórn hafi lagt fram tillögu um nýtt merki félagsins á fundinum.
Merkið er dökkgrænt og lítur út eins og merki Pírata nema í stað þorsksins er kópur.
„Heitar umræður voru um breytingarnar og ekki allir par sáttir. Ekki liggur fyrir hvort merkið sé brot á höfundarrétti Kópavogsbæjar á eigin merki en vildu sumir „píratera“ kópnum í leyfisleysi. Var tillögunni loks vísað til nýrrar stjórnar til frekari úrvinnslu,“ segir í tilkynningunni.