Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir sem fer fram í dag.
Málþinginu, sem hefst kl. 13, er ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verður velt upp, að því er segir í tilkynningu.
Hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu hér fyrir neðan:
Fjallað verður um hvernig skimunum er háttað í dag, ávinning þeirra, áhættu og um þau sjónarmið sem huga þarf að þegar metið er hvort og þá hvaða fósturskimanir heilbrigðisyfirvöld eigi að bjóða.
Þingið verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl. 13.00-16.30.
Nánari upplýsingar hér um dagskrána.