Umferðarslys varð á Kjalarnesi á tíunda tímanum í kvöld. Ökumaður er ekki talinn alvarlega slasaður.
Þetta staðfestir Bjarni Ingimarsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Bjarni segir að bíl hafi verið ekið á kyrrstæðan bíl og ljósastaur. Bíllinn valt svo og endaði á toppnum.
Ökumaður kom sér sjálfur út úr bílnum og er ekki talinn vera alvarlega slasaður.