Það dregur úr vindi og úrkomu á landinu í dag. Það verða norðan 3-10 m/s og dálítil væta á Norðausturlandi síðdegis, en annars víða bjartviðri.
Hitinn verður 5 til 10 stig að deginum sunnan og vestan til, en 0 til 6 stig norðan- og austanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að svipað veður verði á morgun. Áttin verður norðvestlæg og dálítil rigning eða slydda eftir hádegi fyrir norðan.