Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti fyrir á Alþingi í gær frumvarpi sínu til nýrra sóttvarnalaga og frumvarpi sem fjallar um heilbrigðisskrár og felur í sér breytingar á lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um sjúkraskrár.
Frumvörpunum hefur nú verið vísað til umfjöllunar í velferðarnefnd Alþingis að því er fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Frumvarp til nýrra sóttvarnalaga er nú lagt fram á Alþingi í fjórða sinn en gerðar hafa verið á því minniháttar breytingar frá 154. löggjafarþingi, einkum með hliðsjón af ábendingum sem þá komu fram í þinglegri meðferð velferðarnefndar.
„Þar ber helst að nefna breytingar sem lúta að ákvörðunum ráðherra um sóttvarnaráðstafanir vegna samfélagslega hættulegs sjúkdóms í 28. gr., um að reglugerðir settar samkvæmt ákvæðinu hafi að hámarki átta vikna gildistíma,“ segir í tilkynningunni.
Frumvarp ráðherra sem snýr að heilbrigðisskrám var áður flutt á 154. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Það er nú endurflutt lítið breytt með hliðsjón af sjónarmiðum Landspítala og persónuverndar í umsögnum sem velferðarnefnd aflaði við meðferð málsins.
„Í fyrsta lagi að setja ítarleg ákvæði um tilgang heilbrigðisskráa, öflun upplýsinga í slíkar skrár, rekstur þeirra og notkun.
Í öðru að tryggja lagastoð fyrir stofnun og rekstri gæðaskráa af hálfu heilbrigðisstofnana og starfsstofa heilbrigðisstarfsfólks.
Í þriðja lagi eru lagðar til breytingar er varða aðgang heilbrigðisyfirvalda að sjúkraskrám við meðferð kvörtunar- eða kærumála vegna veittrar meðferðar og við rannsóknir á atvikum í heilbrigðisþjónustu,“ segir enn fremur í tilkynningunni.