Maðurinn sem lést í gær þegar hann féll í Hlauptungufoss í Brúará var um þrítugt og frá Katar.
Hann var hér á ferðalagi ásamt fjölskyldu sinni þegar slysið varð. Frá þessu greinir lögreglan á Suðurlandi í tilkynningu.
Tildrög slyssins eru sögð til rannsóknar.
Ekki er grunur um að það hafi borið að með saknæmum hætti.