Dómendur í manndrápsmáli í London fyrir rúmum þremur áratugum dæmdu nítján ára gamlan blökkumann, Oliver Campbell, til langrar fangelsisvistar fyrir verslunarrán sem endaði með manndrápi. Ekkert vitnanna bar kennsl á hinn grunaða við sakbendingu, hann var hávaxnari og yngri en ræninginn.
„Þegar ég skoðaði yfirheyrslurnar leist mér ekki á, mér fannst eins og hann hefði verið þvingaður,“ segir Gísli Guðjónsson, prófessor emeritus í réttarsálfræði, við Morgunblaðið. „Ég skoðaði þessar fjórtán yfirheyrslur en það var ekkert mark tekið á því. Það vildi enginn heyra að lögreglan hefði gert eitthvað rangt og á það var ekki hlustað.“
Í síðustu viku var Campbell sýknaður eftir að hafa barist fyrir endurupptöku málsins í áratugi og setið inni í ellefu ár, svo að þegar upp var staðið var mat Gísla árið 1991 rétt niðurstaða.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag