Lögreglu barst tilkynning fyrr í dag um ökumann sem lenti í árekstri í Vesturbænum en stakk síðan af. Málið er til rannsóknar.
Frá þessu er greint í dagbók lögreglu. Ekki eru veittar frekari upplýsingar um málið.
Brotist var inn í verslum og vörum stolið í hverfi 104 í Reykjavík. Málið er til rannsóknar.
Tilkynnt var um líkamsárás í Kópavogi. Lögregluskýrsla var rituð.
Þá varð umferðaróhapp í Hafnarfirði. Einn var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann var látinn laus úr haldi lögreglu að skýrslutöku lokinni.