Lögreglumenn á Vesturlandi mættu bifreið sem ekið var á 145 km hraða þegar þeir voru við löggæslueftirlit í gærkvöldi á Vesturlandsvegi við Hafnarfjall.
Þeir veittu bifreiðinni strax eftirför með blá ljós tendruð en ökumaðurinn stöðvaði ekki för sína þrátt fyrir að honum væru gefin stöðvunarmerki. Þess í stað jók hann ferðina og reyndi að stinga lögregluna af, að því er segir í facebookfærslu lögreglunnar á Vesturlandi.
Ökumaðurinn mætti síðan öðrum lögreglubíll sem var einnig á ferð um Vesturlandsveg þar sem bifreiðinni er ekið á ofsahraða frá fyrri lögreglubifreiðinni. Hraðinn var þá mældur á 188 km/klst.
Fjarskiptamiðstöð lögreglu var gert viðvart um eftirförina og sjúkrabifreið var ræst út frá Borgarnesi til öryggis.
Ökumaðurinn ók áfram Vesturlandsveg inn á Borgarfjarðarbraut. Eftirförinni lauk á Hvítárvallarvegi þar sem ökumaður stöðvaði bifreiðina og gafst upp. Hann var handtekinn á staðnum.
Ökumaðurinn og farþegar hans eru aðeins 17 og 18 ára og því var haft var samband við foreldra, auk þess sem barnavernd var gert viðvart.
Ökumaðurinn var fluttur á lögreglustöðina á Akranesi þar sem hann var sviptur ökuréttindum á staðnum og á hann von á hárri sekt að auki.