Í samningaviðræðunum af fullum heilindum

Fundur félaganna verður haldinn á morgun hjá ríkissáttasemjara.
Fundur félaganna verður haldinn á morgun hjá ríkissáttasemjara. mbl.is/Golli

Sigurjón Norberg Kjærnested, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, segir það gífurlega mikilvægt að kjarasamningar náist á morgun er fundað verður með Eflingu.

„Við erum í samningaviðræðunum af fullum heilindum og vonumst eftir því að ná kjarasamningi enda er það gífurlega mikilvægt. Að öðru leyti þá getum við ekki tjáð okkur um einstaka efnisatriði,“ segir Sigurjón í samtali við mbl.is.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði í samtali við mbl.is í gær að ef samtökin kæmu ekki með tillögu að lausn eða lagfæringu á mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna á fundi félaganna á morgun myndi Efling slíta viðræðunum. Þá komi undirbúningur verkfallsaðgerða til skoðunar í kjölfarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert