Víðtæk gæsla til að koma í veg fyrir ungmennadrykkju

Lauf­skála­rétt í Hjalta­dal, stærsta stóðrétt lands­ins, fór fram í gær.
Lauf­skála­rétt í Hjalta­dal, stærsta stóðrétt lands­ins, fór fram í gær. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Lögreglan á Norðurlandi vestra og sveitarfélagið Skagafjörður stóðu saman að víðtækri gæslu á Laufskálaréttarballi í gærkvöldi þar sem áhersla var lögð á að koma í veg fyrir ungmennadrykkju.

Þetta kemur fram í Facebook–færslu lögreglunnar en Laufskálarétt er stærsta stóðrétt landsins. 

Í tilkynningunni segir að nokkur fjöldi ungmenna undir 18 ára aldri reyndist vera undir áhrifum áfengis og í öllum tilvikum sem afskipti voru höfð af ungmennum í slíku ástandi var haft samband við foreldra og/eða forráðamenn.

Foreldrum var þá gert að sækja sín ungmenni og fóru nokkrir um langan veg, enda sum ungmenni komin langt að.

Í tilkynningunni segir að flestir foreldrar tóku vel í þá beiðni. „Einhverjir voru þó ósáttir en það er kýrskýrt að gefi foreldrar ungmennum sínum leyfi til að sækja viðburð um langan veg þá breytir engu um ábyrgð foreldra.“

Öll mál er varða ungmenni yngri en 18 ára eru tilkynnt til barnaverndaryfirvalda í viðkomandi sveitarfélagi.

Þá segir að að öðru leyti fór skemmtanahald helgarinnar að mestu leyti ágætlega fram, lagt var hald á nokkuð magn ætlaðra fíkniefna og einstaka pústrar voru á milli manna.

„Mjög gott samstarf var á milli dyravarða og lögreglu, enda sameiginlegt markmið allra að hver og einn, hafi tækifæri til að skemmta sér vel án ofbeldis.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert