Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, gerir ráð fyrir að faðir hennar, Sturla Böðvarsson, muni leita í reynslubanka hennar næstu fjögur árin þegar þau munu bæði gegna starfi bæjarstjóra.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem feðgin bæði gegna hlutverki bæjarstjóra á sama tíma hér á landi.
„Mér líst ljómandi vel á þetta. Ég hef helst áhyggjur af því að hann hafi ekki nægan tíma til að sinna mér,“ segir Ásthildur í samtali við mbl.is.
Hún slær á létta strengi, ánægð með árangur feðginanna. „Ég mun leita mikið til hans og hann til mín. Hann hefur gríðarlega langa reynslu af sveitarstjórnarmálum og samskiptum við stjórnvöld.“
Ásthildur bendir þó á að margt hafi breyst á 25 árum, frá því að faðir hennar gegndi síðast hlutverki bæjarstjóra. Hún hefur aftur á móti verið bæjarstjóri í Vesturbyggð síðastliðin fjögur ár. „Ég er því komin með talsverða þekkingu á nútíma stjórnsýslu,“ segir Ásthildur.
Breiðafjörðurinn mun skilja feðginin að. „Það verður gaman að endurnýja almennilega kynnin við sveitastjórn í Stykkishólmi. Ég held að þetta verði til að efla samstarf yfir Breiðafjörðinn,“ segir Ásthildur.
Sturla tók við sem bæjarstjóri í Stykkishólmi árið 1974, sama ár og Ásthildur fæddist. „Pabbi spurði mömmu á sænginni hvort hún vildi flytja vestur og hún var tilbúin til þess og ég er því alin upp í þessu,“ segir Ásthildur.
Í Vesturbyggð var ekki kosið í sveitarstjórnarkosningunum á laugardaginn og var því listi sjálfstæðismanna og óháðra sjálfkjörinn. Sturla var fjórði maður á H-lista Framfarasinnaðra Hólmara.
Hann var sveitarstjóri og síðar bæjarstjóri á árunum 1974 til 1991. Þá tók hann sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Samkvæmt lokatölum í gær hlaut H-listinn meirihluta atkvæða, eða 56,7 prósent atkvæða, og fjóra menn í bæjarstjórn