Þórdís Lóa leiðir Viðreisn í Reykjavík

Frambjóðendur Viðreisnar í Reykjavík.
Frambjóðendur Viðreisnar í Reykjavík. Ljósmynd/Aðsend

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir verður oddviti Viðreisnar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Þetta kom fram á opnum félagsfundi flokksins. Þar var samþykkt tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins fyrir komandi kosningar.

Um er að ræða fullskipaðan 46 einstaklinga framboðslista þar sem rík áhersla er lögð á fjölbreyttan bakgrunn frambjóðenda auk dreifingar í aldri, kyni og búsetu, að því er kemur fram í tilkynningu.

Áherslur Viðreisnar í borginni verða á frjálslyndi, víðsýni, almannahagsmuni og jafnrétti með það að leiðarljósi að Reykjavík verði enn betri borg til að búa í.

„Reykjavík er frábær borg þar sem mætast borgarmannlíf og nálægð við náttúru. Okkur í Viðreisn er sérstaklega umhugað um að setja fókusinn á þarfir borgarbúa í daglegu lífi í borginni. Leiðarljósið okkar er að tryggja borgarbúum góða þjónustu, framúrskarandi menntun, heildstætt skipulag og góðar samgöngur. Þannig viljum við stuðla að því að Reykjavík verði besta borg í Evrópu sem við teljum raunhæft ef vel er haldið á spöðunum,“ segir Þórdís Lóa í tilkynningunni.

Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík:

  1. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, rekstrarhagfræðingur
  2. Pawel Bartoszek, stærðfræðingur
  3. Diljá Ámundadóttir, almannatengill og varaborgarfulltrúi
  4. Gunnlaugur Bragi Björnsson, viðskiptafræðingur
  5. Vilborg Guðrún Sigurðardóttir, grunnskólakennari
  6. Geir Finnsson, formaður Uppreisnar í Reykjavík
  7. Arna Garðarsdóttir, mannauðsstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands
  8. Ingólfur Hjörleifsson, aðjúnkt við verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ
  9. Helga Lind Mar, laganemi, frístundaleiðbeinandi og aktívisti
  10. Hörður Ágústsson, framkvæmdastjóri
  11. Sara Sigurðardóttir, sérfræðingur í markaðsmálum
  12. Árni Grétar Jóhannsson, leikstjóri og leiðsögumaður
  13. Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, nemi
  14. Freyr Gústavsson, tekjustjóri
  15. Þórunn Hilda Jónasdóttir, verkefnastjóri viðburða
  16. Arnar Kjartansson, nemi
  17. Jenný Guðrún Jónsdóttir, rekstarstjóri
  18. Sverrir Kaaber, skrifstofustjóri
  19. Kristín Ágústsdóttir, sérfræðingur
  20. Oddur Mar Árnason, þjónn
  21. María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar
  22. Einar Thorlacius, lögfræðingur
  23. Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir, lögfræðingur
  24. Aron Eydal Sigurðarson, þjónustufulltrúi
  25. Aðalbjörg Guðmundsdóttir, náms og starfsráðgjafi
  26. Gylfi Ólafsson, doktorsnemi
  27. Dóra Tynes, lögmaður
  28. Lárus Elíasson, verkfræðingur
  29. Sóley Ragnarsdóttir, lögfræðingur
  30. Starri Reynisson, stjórnmálafræðinemi
  31. Sandra Hlín Guðmundsdóttir, nám- og starfsráðgjafi
  32. Einar Karl Friðriksson, efnafræðingur
  33. Sigrún Helga Lund, dósent í líftölfræði
  34. Jón Bjarni Steinsson, framkvæmdastjóri
  35. Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, markaðsstjóri
  36. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands
  37. Ásdís Rafnar, lögfræðingur
  38. Lúðvíg Lárusson, sálfræðingur
  39. Stefanía Sigurðardóttir, viðburðastjóri
  40. Samúel Torfi Pétursson, skipulagsverkfræðingur
  41. Jóhanna E. Sveinsdóttir, viðskiptafræðingur
  42. Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri
  43. Tanja Kristín Leifsdóttir, grunnskólakennari
  44. Andri Guðmundsson, deildarstjóri
  45. Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, fyrrverandi lektor
  46. Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert