Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð hefur samþykkt framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, sem fram fara þann 26. maí næstkomandi.
Jens Garðar Helgason, núverandi oddviti flokksins og formaður bæjarráðs, skipar efsta sæti listans en Sjálfstæðisflokkurinn er með þrjá fulltrúa í núverandi bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Konur eru í meirihluta frambjóðenda en listann skipa tíu konur og átta karlar.
Framboðslistinn er sem hér segir:
- Jens Garðar Helgason, Eskifirði, framkvæmdastjóri
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, Fáskrúðsfirði, verslunarstjóri
- Ragnar Sigurðsson, Reyðarfirði, lögfræðingur
- Heimir Gylfason, Neskaupstað, rafeindavirki
- Elísabet Esther Sveinsdóttir, Reyðarfirði, fulltrúi mannauðsmála
- Sara Atladóttir, Eskifirði, knattspyrnuþjálfari
- Arnór Stefánsson, Breiðdalsvík, hótelstjóri
- Jóhanna Sigfúsdóttir, Reyðarfirði, innkaupafulltrúi
- Sævar Guðjónsson, Eskifirði, leiðsögumaður
- Kristín Ágústsdóttir, Neskaupstaður, landfræðingur
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Eskifirði, leikskólastjóri
- Ingibjörg Karlsdóttir, Reyðarfirði, verkefnastjóri
- Magnús Karl Ásmundsson, Reyðarfirði, skipuleggjandi
- Kristinn Þór Jónasson, Eskifirði, verkstjóri
- Svanhildur Björg Pétursdóttir, Reyðarfirði, vélfræðingur
- Kjartan Glúmur, Reyðarfirði, kennari
- Katrín Pálsdóttir, Neskaupstað, nemi og knattspyrnukona
- Dóra Gunnarsdóttir, Fáskrúðsfirði, húsmóðir