Gunnar Þórarinsson verður oddviti lista Frjáls Afls í Reykjanesbæ fyrir sveitastjórnarkosningarnar nú í vor. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Frjálst Afl sendi frá sér nú í kvöld. Flokkurinn fékk tvo menn kjörna í síðustu sveitastjórnarkosningum og tók þátt í meirihluta samstarfi á því kjörtímabili.
Annað sæti á listanum skipar Jasmina Crnac, það þriðja skipar Íris Kristjánsdóttir, það fjórða Alexander Ragnarsson og í fimmta sæti er Rósa Björk Ágústsdóttir.