Klukkan 13 í dag voru 12.438 manns eða 16,9% þeirra sem eru skráðir á kjörskrá í Suðvesturkjördæmi búin að kjósa samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjórn í kjördæminu.
Í kjördæminu eru 73.729 manns á kjörskrá.
Fleiri hafa kosið á þessum tíma í ár en í alþingiskosningunum árið 2017, þá höfðu 15,7% kosið eða 10.928 manns. Ef litið er til forsetakosninganna árið 2020 höfðu aðeins um 13,4% kosið klukkan 13.