Sér sóknarfæri í matvælunum

Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra tekur nú við sjávarútvegsmálunum, sem og …
Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra tekur nú við sjávarútvegsmálunum, sem og matvæla- og landbúnaðarmálum. mbl.is/Árni Sæberg

Svandís Svavarsdóttir, fráfarandi heilbrigðisráðherra og nýr matvæla- sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kveðst í samtali við mbl.is spennt fyrir nýju hlutverki sínu. 

„Mér finnst svo gaman að læra nýja hluti og takast á við ný og spennandi verkefni. Þarna eru bæði sóknarfæri varðandi losun gróðurhúsalofttegunda, það er auðvitað mikil losun á þessum sviðum, og svo kemur skógræktin og landgræðslan þarna inn. Svo eru líka sóknarfæri í matvælaframleiðslu, grænmetisræktun, lífræna ræktun og svo framvegis. Svo að þetta eru bara tækifæri,“ segir Svandís og bætir við að þetta sé mjög ólíkt því sem hún hefur tekist á við undanfarið. 

Hún hafi þó, í ráðherratíð sinni sem heilbrigðisráðherra, verið í samstarfi með Kristjáni Þór Júlíussyni, þá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um sýklalyfjaónæmi. 

Svandís segist þurfa ráðrúm til að setjast yfir málefni ráðuneytisins áður en hún geti svarað hvaða áherslur verði uppi við endurskoðun búvörusamninga, sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert