Guðfinnur sækist eftir 4. sæti

Guðfinnur Sigurvinsson.
Guðfinnur Sigurvinsson. Ljósmynd/Aðsend

Guðfinnur Sigurvinsson stjórnsýslufræðingur og aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, gefur kost á sér í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í prófkjöri Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 

Prófkjörið fer fram fer laugardaginn 5. mars næstkomandi.

„Garðabær er nú í hröðum vexti og ný hverfi að rísa sem eru byggð af miklum metnaði. Því fylgja líka áskoranir og mikilvægt að rekstur bæjarins sé traustur. Markmiðið er að bærinn nái kjörstærð með á bilinu 25.000 til 35.000 íbúa og þá er verkefnið að tryggja áfram sem besta þjónustu og lífsgæði fyrir bæjarbúa. Ég vil á næsta kjörtímabilinu sjá Garðabæ ráðast í markaðsátak enda hefur verslun og þjónusta blómstrað í bænum undanfarin ár með margs konar nýjungum og við eigum að sækja þau sóknarfæri sem við eigum þar inni. Mögulega í samstarfi við okkar næstu sveitarfélög, eins og Hafnarfjörð og Kópavog, enda má líta á þetta sem eitt markaðssvæði sem getur verið valkostur við miðborg Reykjavíkur,“ er haft eftir Guðfinni í tilkynningu.

Hann segist horfa til þess að halda áfram að byggja upp og styrkja Garðatorgið í þessu tilliti.

„Umhverfis- og menningarmál eru mér ofarlega í huga sömuleiðis, þar getum við verið stolt af góðum árangri en þar er líka verk að vinna. Menningarhús í Garðabæ og spennandi möguleikar í uppbyggingu við Vífilsstaði, sem gætu orðið suðupottur iðandi mannlífs, eru dæmi um verkefni sem ég er spenntur fyrir,“ segir Guðfinnur.

Guðfinnur hefur verið fyrsti varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2018 og átt sæti í umhverfisnefnd Garðabæjar.

Hann starfar sem fyrr segir sem aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og var áður samskiptastjóri Sýnar hf., móðurfélags Vodafone, Stöðvar 2 og tengdra fjölmiðla frá 2017 til 2019.

Þá var Guðfinnur upplýsingafulltrúi og teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun frá 2014 til 2017 og frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu 2005 til 2013. Guðfinnur er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá HÍ og MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert