Það eru spennandi tímar hjá tveimur rauðum pönduhúnum sem fæddust í dýragarðinum í Bratislava í Slóvakíu fyrir fjórum mánuðum. Þau Pim og Pam, eins og þau eru kölluð, reiða sig enn á mjólk móður sinnar en undanfarið hafa þau fært sig upp á skaftið við að éta fasta fæðu.