Yesmine Olson og Arngrímur Fannar Haraldsson eru gestir þáttarins Betri helmingurinn með Ása. Hjónin hnutu um hvort annað í líkamsræktarstöðinni Planet Pulse sem Jónína Benediktsdóttir heitin rak á sínum tíma. Yesmine var einkaþjálfari í stöðinni þegar Addi Fannar, eins og hann er kallaður kom þangað inn fyrir tilstuðlan bróður síns, Einars Bárðarsonar.