Hallgerður Hauksdóttir, áhugakona um heilsusamlegan lífstíl og stofnandi Föstusamfélagsins á Facebook, var orðin þreytt á megrunarkúrum sem ekki virkuðu. Hún kynnti sér föstur í þaula og komst að því að rétt framkvæmdar föstur geta bæði hjálpað fólki við að léttast en einnig verið líkamanum stoð við að endurstilla efnaskipti.