Við Andrés Magnússon kollegi minn af Morgunblaðinu fórum til Kaupmannahafnar á dögunum þar sem við reynsluókum fjórða rafmagnsbílnum frá Volkswagen. Bíllinn heitr ID. Buzz og var fyrst kynntur á bílasýningu í Þýskalandi í mars. Um er að ræða 100% rafmagnsbíl sem er endurgerð af gamla rúgbrauðinu sem kom á markað fyrir 60 árum.