Valdimar Guðmundsson segir allt annað hafa dottið í annað sæti þegar sonurinn, Sigurjón Tumi, fæddist fyrir einu og hálfu ári. Það sé orðið miklu erfiðara að fara í burtu frá heimilinu og hann finni mjög til ábyrgðar sinnar. Hann segir að í raun hafi lífið öðlast meiri dýpt við fæðingu sonarins.