Hinn reyndi björgunarsveitarmaður Otti Rafn Sigmarsson sem er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag þarf ekki að hugsa sig lengi um þegar hann er spurður hvort hann eigi von á að atburðarrásin sem nú er í gangi, endi með gosi. „Já. Ég held að þetta endi með eldgosi.“