Halla Tómasdóttir kvaðst á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is ekki vera hlynnt því að íslensk stjórnvöld styddu vopnakaup til Úkraínu, sem verst áfram gegn ólöglegri innrás Rússlands. Hún vildi frekar að Ísland fjármagnaði sáraumbúðir frá Kerecis og stoðtæki frá Össuri.