Ensím sem étur upp plast

Vísindamenn telja sig hafa náð að bæta náttúrulegt ensím með þeim hætti að það getur „melt“ – ef svo má segja – hluta þess plastúrgangs sem til fellur í samfélagi manna.

Hið sterka plast sem notað er m.a. í plastflöskur er kallað PET og er hundruð ára að brotna niður í náttúrunni. Hið breytta ensím kalla vísindamennirnir PETase og segja þeir að efnið geti hafið niðurbrot plasts á innan við nokkrum dögum. Það gæti flýtt niðurbrotsferlinu með þeim hætti að hægt yrði að endurnýta plastið í meira mæli en nú er gert.

Í frétt BBC um málið er rifjað upp að í Bretlandi eru keyptir um 13 milljarðar af drykkjum í plastumbúðum ár hvert en yfir þrír milljarðar þeirra eru ekki endurunnir.

Hið breytta ensím á uppruna sinn að rekja til rannsóknarstofu í Japan. Ensímin eru gerð úr bakteríum sem geta „étið“ PET-plastið, eins og það er orðað í frétt BBC.

Hér má lesa ítarlega frétt BBC um málið og hér má lesa frétt CNN um málið.

Plastflöskur eru stórt vandamál í heiminum. Þær eru notaðar undir …
Plastflöskur eru stórt vandamál í heiminum. Þær eru notaðar undir drykki í stórum stíl en plastið er hundruð ára að brotna niður. Það gæti mögulega breyst. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert