Fyrst til að hljóta verðlaunin í 55 ár

Donna Strickland hefur hlotið Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði, og er hún fyrsta konan til að hljóta verðlaunin í 55 ár. Strickland kemur frá Kanada og er aðeins þriðja konan sem hlýtur verðlaunin, en Marie Curie hlaut verðlaunin 1903 og Maria Goeppoert-Mayer hlaut þau 1963, eða fyrir 55 árum.

Strickland hlaut verðlaunin ásamt tveimur karlkyns kollegum sínum, hinum bandaríska Arthur Ashkin og Gerard Mourou frá Frakklandi.

Nóbelsverðlaunin hlutu þau fyrir störf sín á sviði leysiseðlisfræði (e. laser physics), en verðlaunaféð nemur alls níu milljónum sænskra króna, eða um 113 milljónum íslenskra króna.



Donna Strickland er þriðja konan til að hljóta verðlaunin.
Donna Strickland er þriðja konan til að hljóta verðlaunin. Ljósmynd/Nóbelsverðlaunin
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert