Plöntur á heimskautatúndrunni orðnar hávaxnari

Tvö tilraunasvæði voru sett upp á Íslandi á tíunda áratug …
Tvö tilraunasvæði voru sett upp á Íslandi á tíunda áratug síðustu aldar og eins hefur staðið yfir vöktun á gróðurfari og ástandi beitilands á láglendi og til heiða.

Hávaxnari plöntutegundir en áður hafa dreifst inn á heimskautatúndruna og þær sem fyrir voru hafa einnig hækkað. Þetta kemur fram í yfirgripsmikilli rannsókn 130 líffræðinga víða um heim sem fjallað er um í vísindatímaritinu Nature.

Sýnir rannsóknin glöggt að hlýnandi loftslag er megindrifkraftur gróðurbreytinganna, en meðal þátttakenda í rannsókninni eru þau Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor í vistfræði við Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands, og Borgþór Magnússon, vistfræðingur við Náttúrufræðistofnun Íslands.

Fram kemur í greininni að hávaxnari tegundir dreifist nú inn á túndruna og hæð þeirra plantna sem fyrir voru sé einnig meiri, en gróður heimskautatúndrunnar hefur einkennst af lágvöxnum jurtum og lyngi. Hefur þetta almennt leitt til hækkunar gróðurs á síðustu áratugum.

„Niðurstöður okkar sýndu að aukin hæð var ekki bundin við örfá svæði heldur eru þetta almenn viðbrögð plantna á túndrusvæðum. Ef hlutdeild hávaxinna plantna heldur áfram að aukast í sama mæli og verið hefur kann hæð gróðurs að aukast um 20 til 60 prósent fyrir lok aldarinnar,“ er haft eftir fyrsta greinahöfundi, Anne Bjorkman við Senckenberg Biodiversity and Climate Research Centre í Frankfurt í Þýskalandi, í fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands.

Erfið loftslagsskilyrði á heimskauta- og háfjallatúndru hafa í gegnum tíðina takmarkað gróður þessara svæða við lágvaxnar tegundir, en þar sem loftslag heimskautasvæða hlýnar nú mun hraðar en í öðrum lífbeltum jarðar gerir það hávaxnari tegundum kleift að nema þar land.

Eru niðurstöður greinarinnar sagðar byggja á greiningu „umfangsmesta gagnasafns sem til er um plöntur á heimskautasvæðum“. Gögnin koma frá rúmlega 100 rannsóknasvæðum víðs vegar á túndrunni og  lögðu íslensku þátttakendurnir til gögn frá bæði Íslandi og Svalbarða. „Rannsóknin sýnir glöggt að hlýnandi loftslag er megindrifkraftur gróðurbreytinganna,“ segir Borgþór Magnússon.

Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor í vistfræði við Líf- og umhverfisvísindastofnun …
Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor í vistfræði við Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands, og Borgþór Magnússon, vistfræðingur við Náttúrufræðistofnun Íslands, eru meðal þátttakenda í rannsókninni. Ljósmynd/Aðsend

Gróðurbreytingar líklegar til að hafa áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika

Þá tók rannsóknin einnig til breytinga á öðrum eiginleikum plantna en hæð, m.a. blaðstærð og næringarefnainnihaldi þeirra. Sýndu þessir eiginleikar ekki sams konar svörun, heldur virtust frekar tengjast jarðvegsraka en hitastigi. Það sýni fram á að breytingar í úrkomu geti orsakað gróðurbreytingar á heimskautasvæðunum. „Mjög líklegt er að þessar gróðurbreytingar muni hafa áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika og starfsemi vistkerfa haldi áfram sem horfir,“ segir Ingibjörg Svala.

Rannsóknin staðfesti enn fremur gildi langtímavöktunarrannsókna og alþjóðlegs samstarfs, en stór hluti gagnasafnsins kemur frá tilraunasvæðum sem voru sett upp á tíunda áratug síðustu aldar sem hluti af Alþjóðlega túndrutilraunanetverkinu ITEX. Tvö slík svæði voru á þeim tíma sett upp á Íslandi undir forystu Ingibjargar Svölu og tíu árum seinna á Svalbarða.

Þá hefur frá árinu 1997 staðið yfir vöktun á gróðurfari og ástandi beitilands á láglendi og til heiða hér á landi og hefur Borgþór haft umsjón með því verkefni sem unnið er í samstarfi Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landgræðslu ríkisins og Landbúnaðarháskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert