Óska upplýsinga um frávik eða galla

Brjóstapúðar hafa m.a. verið til umfjöllunar.
Brjóstapúðar hafa m.a. verið til umfjöllunar. AFP

Lyfjastofnun, Embætti landlæknis og Sjúkratryggingar Íslands hafa sent frá sér sameiginlegt bréf til fjölmargra aðila sem bæði selja lækningatæki og veita heilbrigðisþjónustu hér á landi. Í bréfinu er vísað til laga um ríka tilkynningaskyldu framleiðenda, seljenda og/eða notenda lækningatækja vegna frávika eða óvirkni þeirra, laga sem snúa að öllum stofnununum þremur. 

Erindið tengist nýlegum fréttum Alþjóðasamtaka rannsóknarblaðamanna , ICIJ, þar sem fullyrt var að fjöldi ígræddra lækningatækja uppfylli ekki þær öryggiskröfur sem gera verður til slíkra tækja, og að eftirliti með þeim sé ábótavant, að því er kemur fram á vef landlæknis.

Í bréfinu er vísað til laga um ríka tilkynningaskyldu framleiðenda, seljenda og/eða notenda lækningatækja vegna frávika eða óvirkni þeirra, laga sem snúa að öllum stofnununum þremur.

Því beina Lyfjastofnun, Embætti landlæknis og Sjúkratryggingar Íslands þeim tilmælum til þeirra er málið varðar, að þeir kynni sér áðurnefndar niðurstöður ICIJ, og kanni hvort notuð séu, eða hafi verið notuð lækningatæki eða ígræði af því tagi sem um var fjallað.

Ákveðin tæki til sérstakrar skoðunar

Mælst er til að sérstaklega verði tekin til athugunar ákveðin tæki, eða gangráðar, bjargráðar, brjóstapúðar, gervimjaðmaliðir, gervihjartalokur, ígræðanlegar lyfjadælur og koparlykkjur.

Fram kemur, að ef það hafa komið upp tilvik þar sem kunni að vera frávik, galli eða óvirkni slíkra tækja, sem gætu valdið eða hafa valdið heilsutjóni eða dauða, skuli upplýsa Lyfjastofnun um slíkt með tölvupósti eigi síðar en 21. desember nk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert