Gatwick mun nota andlitsgreiningartæki

Frá Gatwick flugvelli. Þar myndast stundum langar raðir eins og …
Frá Gatwick flugvelli. Þar myndast stundum langar raðir eins og á öðrum flugvöllum en með nýju tækninni er búist við að slíkum röðum muni fækka umtalsvert. AFP

Gatwick-flugvöllur verður fyrsti breski flugvöllurinn sem mun nota andlitsgreiningartæki til frambúðar. Með því verður farþegum gert kleift að ferðast án þess að manneskja líti á vegabréf þeirra eða flugmiða.

Flugvöllurinn, sem framkvæmdi nokkrar tilraunir í samrekstri við flugfélagið EasyJet, mun nýta andlitsskönnunartæknina hjá átta brottfararhliðum eftir að flugbrautin verður framlengd árið 2022. Sunnudagsblað Telegraph greinir frá þessu. 

Heathrow-flugvöllur mun líklega tilkynna svipuð áform fyrir árslok. Stjórnendur á þeim flugvelli eru sagðir eiga í viðræðum sem koma andlitsskönnunartækni á þar. Prófanir á tækninni hafa staðið yfir í sumar en þær hafa kostað flugvöllinn 50 milljónir punda eða því sem nemur tæpum átta milljörðum íslenskra króna. 

Þurfa ekki samþykki frá starfsmanni

Andlitsskönnunartæknin gerir farþegum kleift að ganga í gegnum öryggisleit og inn í flugvél án þess að nokkur manneskja biðji þá um farmiða eða vegabréf. 

Farþegar sem kjósa að nota þjónustuna láta skanna andlitið á sér með tækni sem getur staðfest að þeir séu réttmætir eigendur vegabréfa sinna. 

Iris recognition ber kennsl á mynstur í augum farþega sem …
Iris recognition ber kennsl á mynstur í augum farþega sem er einstakt hjá hverjum og einum. Wikipedia/Smhossei

Augu skönnuð á vellinum

Gatwick-flugvöllur notar einnig forritið Iris recognition, framúrstefnulega tækni sem skynjar einstakt mynstur augna farþega úr fjarlægð, til þess að ákvarða hvort farþegar hafi gengið inn í rétta setustofu fyrir flugferðir sínar. 

Gatwick-flugvöllur fullyrðir að Iris recognition virki jafnvel þó að farþegar notist við gleraugu eða linsur. 

Verkefnin á flugvöllunum tveimur eru hluti af víðtækri áætlun um fjárfestingar til að hagræða farþegaferðum og hefur sú áætlun farið fram út væntingum, að sögn heimildarmanna Telegraph. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert