Aldrei jafn nálægt því að finna lækningu

„Ef lyfið verður samþykkt verður það stærsta skrefið í baráttunni …
„Ef lyfið verður samþykkt verður það stærsta skrefið í baráttunni gegn Alzheimer frá upphafi,“ segir dr. Cath Mummery, yfirlæknir öldrunarlækninga við UCL-háskólann í London. Ljósmynd/Thinkstock

Vísindamenn segjast vera hársbreidd frá uppgötvun sem mun valda straumhvörfum á sviði lækninga gegn Alzheimersjúkdómnum. Lyf sem bandaríska lyfjafyrirtækið Biogen hefur verið að þróa lofar góðu í baráttunni gegn sjúkdómnum.

„Við höfum aldrei komist svona langt, svona nálægt því að finna lækningu. Ef lyfið verður samþykkt verður það stærsta skrefið í baráttunni gegn Alzheimer frá upphafi,“ segir dr. Cath Mummery, yfirlæknir öldrunarlækninga við UCL-háskólann í London. 

Lyfið, sem nefnist aducanumab, getur ekki læknað sjúklinga af Alzheimer en getur hægt verulega á ferlinu hjá þeim sem greinast snemma og gert þeim sem greinast kleift að vera lengur líkari sjálfum sér. Lyfið beinist að ákveðnum prótínum í heilanum sem valda Alzheimer og nái að „sópa“ þeim úr heilanum og þannig stöðva framgang sjúkdómsins. 

Fréttirnar eru óvæntar að því leyti að í mars á þessu ári hætti fyrirtækið prófunum þar sem niðurstöðurnar ollu vonbrigðum. Nú hefur gagnamengið hins vegar verið stækkað og fyrstu prófanir lofa góðu. 

„Enn þá konan sem ég hef verið kvæntur í 35 ár“

„Ég veit ekki hvort lyfið virkar en ég veit að konan mín er ennþá manneskjan sem ég kynntist. Hún er enn þá konan sem ég hef verið kvæntur í 35 ár,“ segir Philip Robinson um eiginkonu sína, Charman Robinson, sem hefur tekið þátt í þróun á lyfinu. „Ég er þakklátur yfir það,“ bætir hann við en viðtalið við þau og dr. Mummery má sjá í myndskeiðinu neðst í fréttinni. 

Of snemmt er að segja til um áhrifin sem geta orðið af lyfinu. Næsta skref að sögn vísindamanna er að koma því í gegnum samþykktarferli í byrjun næsta árs. Ferlið getur tekið allt að tvö ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert