Draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda

Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri SORPU, Edda Sis Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix …
Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri SORPU, Edda Sis Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix og Guðmundur Sigbergsson, framkvæmdastjóri Icert. Ljósmynd/Aðsend

Í sumar hefja Carbfix og Sorpa tilraunir til að farga koldíoxíði (CO2) sem losnar frá urðunarstað Sorpu í Álfsnesi. Með þessu er stefnt að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 3.500 tonn af CO2 á fyrstu stigum og um allt að 7.500 tonn á ári þegar tilraunafasa lýkur. 

Samhliða niðurdælingu á CO2 verður þróuð aðferðafræði til að gefa út kolefniseiningar til kolefnisjöfnunar með Carbfix-aðferðinni, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þar kemur fram að Sorpa sé lykilfyrirtæki í innleiðingu hringrásarhagkerfisins á Íslandi. Með bættri meðhöndlun úrgangs og gangsetningu gas- og gasgerðarstöðvar Sorpu, Gaju, séu stigin stærstu skref í loftslagsmálum á höfuðborgarsvæðinu frá því að kolum var skipt út fyrir heitt vatn til húshitunar.

„Með því að hætta að urða úrgang og vinna moltu og metangas úr lífúrgangi drögum við verulega úr heildarlosun gróðurhúsalofttegunda Íslands. Þetta samstarfsverkefni gerir okkur kleift að gera enn betur,“ segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu.

Verkefnið á Álfsnesi er mikilvægur prófsteinn fyrir aðlögun og þróun Carbfix-aðferðarinnar að ólíkum orku- og iðnaðarferlum. Þá verður CO2 í fyrsta sinn dælt niður í eldra og þéttara berg en finnst í nágrenni jarðhitasvæða. Niðurdælingin mun því gefa mikilvægar vísbendingar um fýsileika þess að beita aðferðinni víðar.

„Carbfix-aðferðin er umhverfisvæn og hagkvæm tæknilausn sem byggir á vísindalegum grunni og leiðir til hraðrar og varanlegrar bindingar á CO2. Uppbygging slíkra lausna á stórum skala er forsenda þess að loftslagsmarkmið náist,“ segir Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, en Carbfix-aðferðin felst í því að leysa CO2 upp í vatni sem er dælt niður í berg. Þar breytist CO2 í stein á innan við tveimur árum.

Verkefnið er umfangsmikið samstarfsverkefni en auk Carbfix og Sorpu koma GeoEnergy og vottunarstofan iCert að verkefninu. Hlutur iCert snýr að því að þróa aðferðafræði, í samvinnu við Carbfix og Sorpu, svo verkefnið uppfylli skilyrði til útgáfu alþjóðlega viðurkenndra kolefniseininga til kolefnisjöfnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert