Mjög gott að Langholti í Hvítá

Frá Langholti við Hvítá í Árnessýslu.
Frá Langholti við Hvítá í Árnessýslu. veida.is

Að sögn Hreggviðs Hermannssonar að Langholti við Hvítá í Árnessýslu hefur verið mjög góð veiði á hans svæði í allt sumar frá því að þar var opnað 20. júní. Kvaðst hann ekki muna eftir svona góðu veiðiári síðan á árunum fyrir 1990.

Sagði Hreggviður um 300 laxa vera komna á land nú þegar sem er mesta veiði fram til þessa á öldinni ef undan er skilið árið 2013, en það ár rétt náði heildarveiði sumarsins 300 löxum. Hreggviður sagði að mikill lax væri nú á svæðinu og svo virtist sem hann væri lagstur fyrir neðan fossana og væri búinn að koma sér þar fyrir, en oft og tíðum hefur laxinn átt það til að stoppa þar stutt við.

Veiðin hefði byrjað af miklum krafti strax á opnunardaginn 20. júní þegar 21 laxi var landað á stangirnar þrjár. Hreggviður kvaðst ekki hafa upplýsingar hvernig veiðin hefði verið á öðrum svæðum í Hvítá.

Hreggviður kvaðst bjartsýnn á framtíðina varðandi að til standi að hætta allri netaveiði á laxi frá og með næsta sumri i Ölfusá og Hvítá. Hann sagði að netaveiði á villtum laxi væri hluti af gamla tímanum.

Stærstu laxarnir sem dregnir hefðu verið að landi í sumar væru í kringum 15 pund. Hann sagði að Lang­holts­svæðið hefði áður fyrr verið þekkt fyr­ir marga stóra laxa sem þar veidd­ust á hverju sumri, en sá tími væri liðinn að þrír til fjórir laxar yfir 20 pund komi á land á sumri og eins og algengt var á árum áður.

Hann kvaðst ekki hafa skýringar á því og hefði sjálfur reynt að leita svara um þetta hjá gömlu Veiðimálastofnun og Hafrannsóknastofnun, en enginn vísindamaður þar getað svarað því með vitrænum hætti hvers vegna þessi fækkun stórlaxa hafi orðið.

Aðspurður sagði Hreggviður að lokum að megnið af veiðinni kæmi á maðk, en margir reyni líka að veiða á fluguna, en þá ættu menn það til að missa talsvert mikið og sérstaklega þá stóru því þarna er áin vatnsmikil og straumhörð sem veitir sterkum löxum góða aðstoð við að losna af agni veiðimanna.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert