Ögrandi svæði fyrir silungsveiðimenn

Erlendur veiðimaður hleypur á eftir vænum urriða í Seyðisá.
Erlendur veiðimaður hleypur á eftir vænum urriða í Seyðisá. Ljósmynd/Aðsend

Veiðifélagið Fish Partner hefur gert átta ára samning um leigu á víðfeðmu veiðisvæði sem gengur undir nafninu Blöndukvíslar. Um er að ræða sjö ár sem falla í Blöndulón. Í ánum má finna bæði bleikju og urriða. Árnar eru Seyðisá, Beljandi, Þegjandi, Kúlukvísl og Stórilækur vestan Blöndu og Herjólfslækur og Haugakvísl austan Blöndu. Blöndulónið sjálft fylgir með og allir lækir sem í það renna.

Fram til þessa hefur svæðið ekki verið mikið nýtt en tilraunaveiðar hafa staðið yfir í sumar á vegum Fish Partner. Hafa þær veiðar gengið ágætlega og innan um eru stórir fiskar. Stærsti fiskurinn sem veiddist í tilraunaveiðunum var 65 sentimetra urriði en einn yfir 70 sentimetra sást í Haugakvísl.

Með flottan urriða úr Seyðisá. Þessum var sleppt. Svæðið er …
Með flottan urriða úr Seyðisá. Þessum var sleppt. Svæðið er ótrúlega stórt og fjölbreytt. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta er fyrst og fremst svæði fyrir þá sem hafa gaman af að ganga og leita að fiski. Þarna er hægt að rekast í mjög stóra fiska en það þarf að hafa fyrir þessu,“ sagði Kristján Páll Rafnsson, einn eigenda Fish Partner í samtali við Sporðaköst.

Skandinavar í leit að ævintýrum

Samtals eru átta stangir á svæðinu og er svæðið mjög fjölbreytt og bakkalengd mikil.

„Við finnum mikinn áhuga frá erlendum veiðimönnum sem vilja komast í silung á skikkanlegu verði. Þetta eru mikið veiðimenn frá Skandinavíu sem eru að leita að ævintýrum og ósnortinni náttúru. Þetta eru upp til hópa flinkir veiðimenn sem eru að leita að áskorunum. Blöndukvíslar eru einmitt eitthvað sem hentar þessum hópi veiðimanna.“

Kristján segir að öllum fiski sé sleppt á svæðinu og einungis er heimillt að veiða á flugu.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert