20:20 í Nesi og ættarþrenna

Ingvi Örn Ingvason með einn af þessum tuttugu sem hafa …
Ingvi Örn Ingvason með einn af þessum tuttugu sem hafa staðið tuttugu pundin í Nesi. Ljósmynd/Aðsend

Tuttugasti tuttugupundarinn veiddist í Laxá í Aðaldal á Nesveiðum í síðasta holli. Það var Eiður Pétursson sem setti í og landaði 105 sentimetra löngum laxi og var ummálið 55 sentimetrar. Þessi stórlax tók í Höfðahyl og flugan var heimahnýttur Sunray – Johnson & Johnson. Steingrímur Stefánsson háfaði og mældi fyrir Eið.

Eiður Pétursson með 105 x 55 sentimetra hænginn.
Eiður Pétursson með 105 x 55 sentimetra hænginn. Ljósmynd/Aðsend

„Hinn hundraðkallinn veiddi Ingvi Örn Ingvason, í Presthyl,“ sagði Árni Pétur Hilmarsson í samtali við Sporðaköst. Árni Pétur segir að hollið hafi landað alls sautján löxum og hafi áin aðeins tekið við sér aftur eftir að hreinlega „slokknaði á henni“ um tíma. Hann vonast nú eftir að þegar haustið læðist að verði fiskurinn árásargjarnari og veiðin aukist á nýjan leik.

Ingvi Hrafn Jónsson með stórlaxinn sem tók Hairy Mary árið …
Ingvi Hrafn Jónsson með stórlaxinn sem tók Hairy Mary árið 1978. Tuttugu árum áður hafði faðir hans landað tuttugu pundara á sama stað, á maðk. Ljósmynd/Aðsend

Þrír ættliðir með 20 pundara

„Það er gaman að segja frá því að Ingvi Örn Ingvason er sonur Ingva Hrafns Jónssonar og er þriðji ættliðurinn til að landa tuttugu pundara hér í Nesi.“ Bróðir Ingva, Hafsteinn Orri, fékk einnig tuttugu pundara árið 2016 og tók sá hálftommu Frigga. Ingvi Örn tók sinn á tommu Frigga í Presthyl eins og fyrr segir. Pabbi strákana, Ingvi Hrafn, landaði tuttugu punda stórfiskinum sínum 1978 og tók sá Hairy Mary númer fjögur. Tuttugu árum áður, eða 1958, hafði pabbi hans, og afi strákanna, Jón Sigtryggsson, landað tuttugu punda fiski á sama stað, eða á Höfðabreiðu.

Hafsteinn Orri og Ingvi Örn sem er á fyrstu myndinni …
Hafsteinn Orri og Ingvi Örn sem er á fyrstu myndinni í fréttinni eru báðir synir Ingva Hrafns. Þetta er svokölluð ættarþrenna. Þrír ættliðir landað tuttugu punda fiskum á sama svæði. Þessi fiskur er 92 sentímetrar veiddur í Vitaðsgjafa. Ljósmynd/Aðsend

Það er greinilegt að stórlaxagenin ganga ekki aðeins á milli fiska. Hér eru stórlaxaveiðigenin að skila sér milli ættliða. Það eina sem hefur breyst á öllum þessum árum er að nú er laxinum sleppt og eingöngu er veitt á flugu í Aðaldalnum.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert