Hlaðvarpið Flugucastið í loftið

Sigþór Steinn Ólafsson með 69 sentímetra urriða úr Laxá í …
Sigþór Steinn Ólafsson með 69 sentímetra urriða úr Laxá í Mývatnssveit. Þessi veiddist á Miðmundarvaði. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta íslenska veiðihlaðvarpið, eða podcast um fluguveiði, hefur hafið göngu sína. Hlaðvarpið ber heitið Flugucastið. Þriðji þáttur var sendur út í dag og situr þar fyrir svörum Villimaðurinn ungi Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson. Stjórnendur Flugucastsins eru tveir miklir veiðiáhugamenn, þeir Sigþór Steinn Ólafsson og Hafsteinn Már Sigurðsson.

Þættirnir eru sendir út vikulega á fimmtudögum. Í fréttatilkynningu um nýja hlaðvarpið segir meðal annars;  „Flugucastið fær til sín einn veiðimann í hverjum þætti sem deilir veiðisögum sínum en allir viðmælendurnir hafa af nógu að taka í reynslubankanum. Þeir deila sögum af sorgum og sigrum, merkilegum veiðistöðum, gefa góð ráð fyrir ákveðna veiði eða ákveðin veiðisvæði og svo mætti lengi telja. Meðal þeirra sem þegar hafa komið fram í þáttunum eru Björn K. Rúnarsson, Eggert Skúlason og Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson.“

Hafsteinn Már Sigurðsson með 88 sentímetra lax úr Blöndu.
Hafsteinn Már Sigurðsson með 88 sentímetra lax úr Blöndu. Ljósmynd/Aðsend

Sigþór og Hafsteinn, umsjónarmenn lofa því að margar sleggjur úr veiðibransanum séu væntanlegar í þáttinn en vilja ekki gefa meiri uppi að svo stöddu heldur hvetja fólk til að fylgjast spennt með.

Um þá félaga segir í fréttatilkynningunni: „Umsjónarmenn þáttarins eru, eins og gefur að skilja, forfallnir veiðimenn. Sigþór Steinn hefur komið víða við í veiðibransanum undanfarin tuttugu ár. Hann hefur stundað allt frá maðkatínslu og fluguhnýtingar yfir í leiðsögn og rekstur veiðisvæða. Hann hefur dvalið átta sumur við leiðsögn í Kjarrá í Borgarfirði en komið mun víðar við í leiðsögn í gegnum tíðina. Hann kann þó best við sig á bökkum Laxár í Mývatnssveit að egna fyrir urriða með þurrflugu.

Hafsteinn Már Sigurðsson er múrari, hljóðmaður, sjálfskipaður grínari og gallharður Kópavogsbúi sem fékk alvarlega veiðibakteríu á þrítugsaldri og líður hvergi betur en við árbakkann, helst á svæði IV í Blöndu eða við Hrútafjarðará.

Flugucastið er aðgengilegt á Spotify, Soundcloud og Apple Podcasts. Hægt er að fylgjast með fréttum af nýjum þáttum á Facebook-síðu Flugucastsins: https://www.facebook.com/flugucastid.

Viðtökur hafa verið góðar og samkvæmt Apple Podcast forritinu eru þeir að rokka frá áttunda til tólfta sætis yfir vinsælustu hlaðvörp á Íslandi.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert