Nú þarf að fara yfir græjurnar

Það borgar sig að vera með allt klárt áður en …
Það borgar sig að vera með allt klárt áður en lagt er af stað í fyrsta veiðitúrinn. Hér er veitt í Heiðarvatni. Ljósmynd/ES

Vorið er á næsta leiti og nú er tíminn fyrir veiðimenn að fara yfir græjurnar. Ólafur Vigfússon í Veiðihorninu fer yfir þetta í nýjasta myndbandinu úr búðinni. Það er fátt vandræðalegra en að opna veiðitöskuna á bakkanum, að vori og finna þar banana frá haustinu áður. Ólafur fer hér yfir það hverju menn þurfa að huga að nú þegar hitastigið fer hækkandi og sífellt fleiri veiðisvæði opnast veiðimönnum.

Stutt er í vatnaveiðin hefjist fyrir alvöru og bíða margir spenntir eftir að bleikjan í Hraunsfirði fari að taka. Stutt er í að Meðalfellsvatn opni og sömuleiðis önnur silungsveiðisvæði víða um land. Þá er rétt að hafa græjurnar tilbúnar og nýtt nesti.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert