Fimm komnir á land í Þverá

Halldór Hafsteinsson með stórlax í morgun úr Þverá í ármótunum …
Halldór Hafsteinsson með stórlax í morgun úr Þverá í ármótunum við Hvítá. Sigurjón Sigurjónsson

Þverá í Borgarfirði opnaði klukkan 8:00 í morgun. Elstu menn í sveitinni hafa aldrei séð hana jafn vatnslitla í upphafi vertíðar og þar er því sama ástandið og hjá systur hennar í næsta nágrenni í Norðurádalnum sem opnaði í gær.

Samkvæmt fyrstu upplýsingum þaðan er mikil veiði í Brennunni við ármót Hvítár. Klukkan 10:00 var búið að landa þar fimm stórlöxum. Að sögn Ingólfs Ásgeirssonar, eins af leigutökum árinnar, er ljóst að Brennan er „on fire“ en hún er einmitt mjög sterk þegar lítið vatn er í Þveránni því þá hægir á laxinum að ganga ofar upp í Þverá.  

Ingólfur kvaðst ekki hafa heyrt af aflabrögðum ofar upp í Þverá en viðbúið að eitthvað væri einnig komið á land þaðan. Nánari upplýsingar um það kæmu um hádegisbil.

Ingólfur Ásgeirsson með annan lax úr Þverá fyrr í morgun.
Ingólfur Ásgeirsson með annan lax úr Þverá fyrr í morgun. Sigurjón Sigurjónsson
Davíð Másson með lax við Brennuna nú fyrr í morgun.
Davíð Másson með lax við Brennuna nú fyrr í morgun. Sigurjón Sigurjónsson
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert