Samkvæmt upplýsingum frá Icelandic Outfitters sem halda utan um veiðirétt á Urriðafosssvæðinu í Þjórsá hefur verið jöfn og góð veiði frá opnun 1. júní.
Að sögn Hörpu Hlínar Þórðardóttur hjá fyrirtækinu voru í gær komnir rúmlega 100 laxar í veiðibókina eftir aðeins fimm daga veiði. Veiðin er því nokkuð jöfn og um 20 löxum landað dag hvern á fjórar stangir.
Laxarnir sem veiðast eru flestir rígvænar hrygnur á bilinu 80 til 80 cm, en því til viðbótar veiðist einn og einn hængur sem eru að mælast á bilinu 88 til 95 cm. Er mun vera fremur fátítt að þeir láti sjá sig svona snemma á tímabilinu. Þá veiddist í fyrradag gríðarlega fallegur sjóbirtingur sem var hnausþykkur og vigtaður um fjögur kíló.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |